Rojo mættur á Old Trafford

Marcos Rojo.
Marcos Rojo. AFP

Manchester United hefur náð samkomulagi við portúgalska liðið Sporting Lissabon um kaupin á varnarmanninum Marcos Rojo.

United greiðir 16 milljónir punda fyrir argentínska landsliðsmanninn sem kom til Manchester í kvöld og gengst hann undir læknisskoðun hjá félaginu á morgun.

Portúgalinn Nani fer til Sporting í skiptum fyrir Rojo en Nani hefur leikið með Manchester-liðinu undanfarin fjögur ár. Nani kom einmitt til United frá Sporting.

Reiknað er með því að Rojo geri fjögurra ára samning við United. Hann er 24 ára gamall sem hefur leikið 28 leiki með argentínska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert