Tottenham úr leik í Evrópu

Mario Gomez og Joaquin fagna marki þess fyrrnefnda.
Mario Gomez og Joaquin fagna marki þess fyrrnefnda. EPA

Tottenham féll úr kvöld úr leik í Evrópudeildinni þegar liðið tapaði fyrir ítalska liðinu Fiorentina á Ítalíu 2:0 í 32-liða úrslitunum.

Mörk Ítalinna skoruðu þeir Mario Gomez og Mohamed Salah í sitthvorum hálfleiknum og lokatölur urðu 2:0. Fyrri leiknum á White Hart Lane lauk með 1:1. jafntefli og Lundúnaliðið því úr leik.

Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax komust í áfram í 16 liða úrslitin með sigri á Legia Varsjá en samtals fór Ajax áfram 4:0 þar sem það vann leikinn heima 1:0. Kolbeinn kom ekki við sögu en hann er að glíma við meiðsli.

Úrslit úr öðrum leikjum:

3:0 Zenit - PSV (4:0)
2:3 Borussia Moenchengladbach - Sevilla (2:4)
2:0  Fiorentina - Tottenham (3:1)
1:0 Inter - Celtic (4:3)
0:3 Legia Varsjá - Ajax (0:4)
1:3 Salzburg - Villareal (2:5)
3:1 Dynamo Kíev - Guingamp (4:3)
3:1 Dinamo Moskva - Anderlecht (3:1)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert