Gus Poyet kærður

Gus Poyet fylgist með leikmönnum sínum úr stúkunni í fyrrakvöld.
Gus Poyet fylgist með leikmönnum sínum úr stúkunni í fyrrakvöld. AFP

Enska knattspyrnusambandið hefur kært Gus Poyet knattspyrnustjóra Sunderland en hann var rekinn upp í stúku í viðureign Sunderland og Hull í fyrrakvöld.

Úrúgvæinn var sendur upp í stúku þegar hann sparkaði um koll vatnsflöskum við hliðarlínuna og á leið sinni af vellinum lenti hann í orðaskaki við Steve Bruce kollega sinn hjá Hull.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert