Evans svarar kærunni og neitar enn sök

Jonny Evans og Papiss Cisse.
Jonny Evans og Papiss Cisse. AFP

Jonny Evans, varnarmaður Manchester United, neitar þeim sökum að hafa hrækt á Papiss Cisse framherja Newcastle í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í vikunni.

Cisse játaði brot sitt og er kominn í sjö leikja bann en nú hefur Evans ákveðið að fara með málið fyrir sjálfstæða agabrotanefnd á vegum enska knattspyrnusambandsins en úrskurðar er að vænta á morgun.

Þetta kom fram á Twitter-síðu enska knattspyrnusambandsins nú rétt í þessu.

Atvikið:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert