Man Utd færist nær leikmanni ársins

Henrikh Mkhitaryan á ferðinni með Dortmund.
Henrikh Mkhitaryan á ferðinni með Dortmund. AFP

Manchester United er skrefi nær því að krækja í Henrikh Mkhitaryan, leikmann Borussia Dortmund, eftir að félögin komust að samkomulagi um kaupverð í morgun.

United mun borga rúmlega 26 milljónir punda fyrir hinn 27 ára gamla miðjumann sem kemur frá Armeníu. Hann hefur þegar samið um kaup og kjör við United og á nú eftir að undirgangast læknisskoðun áður en kaupin ganga í gegn.

Mkhitaryan er fyrirliði armenska landsliðsins og kom til Dortmund frá Shakhtar Donetsk í Úkraínu fyrir þremur árum. Hann átti frábært tímabil með Dortmund síðasta vetur, skoraði 18 mörk og lagði upp önnur 25. Hann var að lokum valinn leikmaður ársins í þýsku 1. deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert