Eggert fær nýjan knattspyrnustjóra

Eggert Gunnþór Jónsson á landsliðsæfingu.
Eggert Gunnþór Jónsson á landsliðsæfingu. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Eggert Gunnþór Jónsson og félagar hans hjá Fleetwood Town sem leika í ensku C-deildinni í knattspyrnu karla hafa fengið nýjan knattspyrnustjóra, en Þjóðverjinn Uwe Rösler hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri félagsins.

Rösler verður samstarfsfélagi Grétars Rafns Steinssonar sem starfar sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Fleetwood Town. Rössler hefur áður stýrt Lilleström, Viking, Molde, Brentford, Wigan og Leeds United á knattspyrnustjóraferli sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert