Átti Liverpool að fá víti í blálokin? (Myndskeið)

Leikmenn sem og stuðningsmenn Liverpool vildu fá víti í leiknum gegn Manchester City í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Anfield í dag. 

Leiknum lauk með jafntefli, 1:1, en alveg undir lok leiks vildu Liverpool-menn fá víti. 

Þá fór Jérémy Doku, kantmaður City, hátt með takkana í bringuna á Alexis Mac Allister, miðjumanni Liverpool, sem henti sér niður. 

Í endursýningu virðist Doku ná að snerta boltann rétt svo áður en hann fer í bringuna á Mac Allister en margir Liverpool-menn vildu fá víti þrátt fyrir það. 

Atvikið má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert