Fjögur mörk og beint rautt (myndskeið)

Tottenham fór illa með Aston Villa í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í dag. Tottenham skoraði fjögur mörk á Villa Park í Birmingham og Aston Villa spilaði manni færri í rúmlega hálftíma.

Markalaust var í hálfleik en James Maddison og Brennan Johnson komu Tottenham í 2:1 en aðeins þrjár mínútur liðu á milli markanna.

Á 66. mínútu fékk John McGinn, fyrirliði Aston Villa, beint rautt spjald fyrir grófa tæklingu á Destiny Udogie.

Næstu tvö mörk Tottenham komu svo aftur með stuttu millibili undir lok leiks.

Mörkin má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska bolt­an­um í sam­vinnu við Sím­ann Sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert