Skrautlegt sjálfsmark (myndskeið)

Hannes Þór Halldórsson hélt marki Sandnes hreinu í dag.
Hannes Þór Halldórsson hélt marki Sandnes hreinu í dag. Ljósmynd/sandnesulf.no

Skrautlegt sjálfsmark réð úrslitunum í leik Sandnes Ulf og Sogndal í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Sandnes, með Hannes Þór Halldórsson, Eið Aron Sigurbjörnsson og Hannes Þ. Sigurðsson alla í byrjunarliðinu, hrósaði sigri gegn Hirti Loga Valgarðssyni og samherjum hans í Sogndal, 1:0, og með sigrinum á Sandnes enn möguleika á að bjarga sæti sínu í deildinni.

Skrautlega sjálfsmarkið má sjá HÉR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert