Jafntefli í Mílanóslagnum

Mílanóliðin Inter og AC gerðu 1:1-jafntefli í stórleik dagsins á Ítalíu. Jeremy Menez kom AC yfir en Joel Obi jafnaði. Þetta var fyrsti leikur Robertos Mancinis sem sneri aftur á bekk Inter-liðsins eftir sex ára fjarveru. 

Menez kom AC yfir á 23. mínútu en Inter jafnaði á þeirri 61. Stephan El Shaarawy komst næst því að bæta við marki en skot hans fór í marksúluna. 

Staðan:

1 Juventus 12 10 1 1 28:4 31
2 Roma 12 9 1 2 21:7 28
3 Napoli 12 6 4 2 23:15 22
4 Sampdoria 12 5 6 1 15:9 21
5 Lazio 12 6 1 5 21:16 19
6 Genoa 11 5 4 2 15:11 19
7 Milan 12 4 6 2 21:17 18
8 Udinese 12 5 3 4 15:15 18
9 Inter 12 4 5 3 18:15 17
10 Fiorentina 12 4 4 4 12:11 16
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert