Mikilvægt stig hjá Ragnari

Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson. mbl.is/Ómar

Ragnar Sigurðsson og félagar í Krasnodar fögnuðu væntanlega stiginu sem þeir fengu gegn CSKA Moskvu í slag liðanna í rússnesku úrvalsdeildinni í morgun. Lokatölur urðu 1:1 þar sem jöfnunarmark Ragnars og félaga kom á 88. mínútu.

Ragnar spilaði allan leikinn en liðin eru í mikilli baráttu um 2. sætið sem veitir þátttökurétt í forkeppni Meistaradeildarinnar. Ragnar og félagar hafa verið á miklu skriði og höfðu fyrir leikinn unnið fjóra leiki í röð. 

Eftir 25 umferðir af 30 hefur liðið 49 stig í 2. sætinu en CSKA Moskva 44 stig í 3. sætinu og stigið því kærkomið. 

Zenit frá Sankti Pétursborg er í 1. sætinu og hefur 55 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert