Ingvar hélt hreinu

Ingvar Jónsson.
Ingvar Jónsson. mbl.is/Eggert

Ingvar Jónsson hélt marki Sandnes Ulf hreinu í dag í sínum öðrum leik með liðinu.

Ingvar, sem í láni frá Start út leiktíðina, stóð á milli stanganna þegar Sandnes Ulf gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Jerv í norsku B-deildinni.

Sandnes Ulf er í öðru sæti deildarinnar með 31 stig eftir 17 leiki en Sogndal trónir á toppnum með 35 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert