Viðar Örn með þrennu fyrir Malmö

Viðar Örn Kjartansson hefur verið sjóðheitur síðustu vikur.
Viðar Örn Kjartansson hefur verið sjóðheitur síðustu vikur. mbl.is/Eggert

Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Malmö í Svíþjóð, gerði þrennu fyrir liðið í 4:1 sigri á Östersund í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Framherjinn knái hefur verið magnaður í síðustu leikjum en hann er kominn með átta mörk í ellefu deildarleikjum.

Hann gerði þrennu fyrir Malmö gegn nýliðum Östersund í dag en hann lék allan leikinn. Þriðja markið kom í uppbótartíma. Kári Árnason lék þá allan leikinn fyrir Malmö.

Haraldur Björnsson var allan tímann á varamannabekk Östersund.

Malmö er í efsta sæti deildarinnar með 27 stig en Östersund er í 11. sæti með 15 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert