Draumamark Shaqiri – myndskeið

Xherdan Shaqiri skorar markið í dag.
Xherdan Shaqiri skorar markið í dag. AFP

Xherdan Shaqiri, landsliðsmaður Sviss í knattspyrnu, skoraði magnað mark gegn Póllandi í 16-liða úrslitum Evrópumótsins sem fer fram í Frakklandi um þessar mundir en óhætt er að segja að markið sé eitt af mörkum mótsins.

Það var útlit fyrir að Pólland færi í 8-liða úrslitin en á 82. mínútu jafnaði Shaqiri metin með frábæru marki.

Hann skoraði með hjólhestaspyrnu fyrir utan teig en boltinn fór af stöng og inn. Hægt er að sjá myndskeiðið hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert