Pepe heldur í vonina

Pepe.
Pepe. AFP

Portúgalski miðvörðurinn Pepe hjá Evrópumeisturum Real Madrid segist ætla að gefa félaginu tækifæri fram á síðustu stundu að ákveða með framtíð sína.

Samningur Pepe rennur út í sumar, en hann hefur verið hjá Real í tíu ár. Pepe er nú fjórði í goggunarröðinni í miðvörðinn hjá liðinu en segist ánægður í herbúðum þess og vonast eftir því að vera áfram.

Pepe hefur meðal annars verið orðaður við félög í Kína, en hann hefur spilað rúmlega 300 leiki með Real síðan hann kom árið 2007. Hann fagnaði meistaratitlinum á Spáni með liðinu um helgina og er til taks fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Juventus 3. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert