Birkir Már fór meiddur af velli

Birkir Már Sævarsson gæti misst af landsleikjum í mánuðinum.
Birkir Már Sævarsson gæti misst af landsleikjum í mánuðinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Birkir Már Sævarsson, landsliðsmaður í fótbolta, fór meiddur af velli í leik Hammarby og Halmstad í sænsku A-deildinni í dag. Birkir lenti þá illa og virtist um meiðsli í öxl að ræða. 

Ekki er víst hversu alvarleg meiðslin eru, en hann er í landsliðshópnum sem mætir Tékklandi og Katar í Katar síðar í mánuðinum. 

Þetta var síðasti leikur Birkis með Hammarby en fyrir lá að hann myndi yfirgefa félagið að tímabilinu loknu eftir þriggja ára dvöl þar sem samningur hans var útrunninn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert