Heimildamynd um meðgöngu Dagnýjar

Dagný Brynjarsdóttir og sonur hennar Brynjar Atli Ómarsson.
Dagný Brynjarsdóttir og sonur hennar Brynjar Atli Ómarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enska knattspyrnufélagið West Ham birti í dag stiklu fyrir heimildamynd sem félagið framleiddi um meðgöngu landsliðskonunnar Dagnýjar Brynjarsdóttur. Myndin ber nafnið Ómarsson. 

Dagný eignaðist sinn annan son 7. febrúar síðastliðinn með eignmanni sínum Ómari Páli Sigurbjartssyni. Fylgdi félagið Dagnýju eftir á meðan á meðgöngunni stóð.

Stiklu fyrir heimildamyndina, sem kemur út 8. mars næstkomandi, má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert