Gunnlaugur hleypur milli Liverpool og Leeds

Gunnlaugur Júlíusson.
Gunnlaugur Júlíusson. mbl.is/Golli

Ofurhlauparinn Gunnlaugur Júlíusson er kominn til Englands þar sem hann mun taka þátt í  götuhlaupi sem hefst í Liverpool og endar í Leeds. Hlaupið er um 130 mílur. Þetta er fyrsta formlega hlaupið á þessari leið.

Það tekur keppendur um 30 klukkutíma að ljúka við hlaupið en Gunnlaugur er öllu vanur enda þreytt fjölmörg götuhlaup sem eru lengri en 100 kílómetrar.

55 keppendur eru skráðir í hlaupið og koma þeir frá sex þjóðlöndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert