Afturelding fór taplaust í gegnum deildina

Afturelding átti fullkomið tímabil í deildinni.
Afturelding átti fullkomið tímabil í deildinni.

Afturelding og HK mættust að Varmá í gærkvöldi í lokaleik deildarkeppni Mizuno-deildar kvenna í blaki. Fyrir leikinn höfðu HK og þjálfari HK, Guðbergur Eyjólfsson, komust að samkomulagi um að hann léti af störfum og var það Einar Sigurðsson sem mun stýra HK liðinu í úrslitakeppninni og mun Þórey Haraldsdóttir vera honum til aðstoðar.   

Aftureldingarkonur höfðu fram að þessum leik unnið alla sína leiki í deildinni og varð engin breyting á  því í kvöld. Jafnt var á með liðunum í byrjun fyrstu hrinu en fljótlega náði Afturelding undirtökunum og vann hrinuna nokkuð auðveldlega 25:13. Í annari hrinu var jafnt á öllum tölum en í stöðunni 16:16 náði HK góðri rispu og komst í 21:16.

Afturelding gaf þó ekkert eftir og kom sér inní leikinn aftur og kláraði hrinuna 25:22 og kom síðasta stigið í hrinunni eftir frábæra hávörn hjá Fjólu Rut Svavarsdóttur. Í hrinu 3 var einnig jafnt með liðunum en Afturelding tók forystuna þegar leið á hrinuna og tryggði sér sigur í hrinunni 25:21 og vann leikinn 3:0.

Hjá Aftureldingu voru það ekki síst sterkar uppgjafir Karenar Bjargar Gunnarsdóttur sem HK átti í erfiðleikum með og var hún stigahæst í liði Aftureldingar með 13 stig og þær Fjóla Rut Svavarsdóttir og Zaharina Filipova með 8 stig. Hjá HK var Laufey Björg Sigmundsdóttir stigahæst með 12 stig og þær Fríða Sigurðardóttir með 7 stig og Ingibjörg Gunnarsdóttir með 6 stig.

Framundan er úrslitakeppni efstu liðanna og þar munu mætast Afturelding gegn Þrótti Neskaupsstað og í hinum undanúrslitaleiknum eru það HK og Stjarnan. Fyrsti leikir undanúrslitanna verða leiknir laugardaginn 11. apríl kl. 14:00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert