Sló þrjú met í einu og sama hlaupinu

Dafne Schippers er heimsmeistari í 200 metra hlaupi, en hún …
Dafne Schippers er heimsmeistari í 200 metra hlaupi, en hún hljóp á tímanum 21,63. AFP

Hollenska hlaupakona Dafne Schippers bætti landsmet, meistaramótsmet og Evrópumetið þegar hún tryggði sér heimsmeistaratitilinn í 200 metra hlaupi rétt í þessu. Hlaup Schippers í dag er þriðja besta hlaup sögunnar.

Tími Schippers var 21,63 sekúndur. Tveir hlauparar frá Jamaíku urðu í öðru og þriðja sæti í hlaupinu. Elaine Thompson varð í öðru sæti á fimmta besta tíma sögunnar, 31,66 sekúndum, og Veronica Campbell Brown varð svo í þriðja sæti á 21,97 sekúndum.

Dafne Schippers lenti í öðru sæti í 100 metra hlaupi og sigraði svo hlaupið í dag eftir gríðarlega góðan endasprett.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert