Justin Gatlin frá Bandaríkjunum er heimsmeistari í 100 metra hlaupi eftir að hafa komið fyrstur í mark á HM í London í kvöld. Landi hans Christian Coleman varð annar og Usain Bolt, heimsmetshafi hafnaði óvænt í þriðja sæti.
Gatlin hefur tvisvar verið dæmdur í bann fyrir að falla á lyfjaprófi og var púað á hann, bæði fyrir og eftir hlaupið. Hann segir Bolt hins vegar hafa óskað sér til hamingju og sagt honum að hann ætti púið ekki skilið.
„Ég reyndi að hugsa frekar um landa mína sem eru heima að hvetja mig áfram og ég reyndi að hundsa púið," sagði Gatlin, áður en hann fór að tala um Bolt.
„Þetta er síðasta 100 metra hlaupið hans og það er frábært að vera hluti af því. Við erum keppninautar á hlaupabrautinni, en utan hennar erum við vinir. Hann var sá fyrsti sem faðmaði mig og óskaði mér til hamingju. Hann sagði að ég ætti ekki skilið að láta púa á mig," sagði hann að lokum.