Axel á tveimur undir í dag

Axel Bóasson.
Axel Bóasson. mbl.is/Styrmir Kári

Axel Bóasson kylfingur úr Keili lék á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari á öðrum keppnisdeginum á fyrsta úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina en mótið fer fram í Þýskalandi.

Eftir þessa tvo hringi er Axel einu höggi yfir pari en spilaðir verða fjórir hringir. Hann þarf að lenda á meðal þeirra 24 efstu til að komast áfram og inn á annað stig úrtökumótsins en hann er sem stendur í 36.sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert