Þórður Rafn í efsta sæti

Þórður Rafn Gissurarson.
Þórður Rafn Gissurarson. Ljósmynd/golf.is

Þórður Rafn Gissurarson byrjar vel á Open Madaef atvinnumótinu sem fram fer í Marokkó. GR-ingurinn er efstur að loknum fyrsta keppnisdegi á -4 en hann lék á 68 höggum.

Mótið er hluti af þýsku Pro Golf atvinnumótaröðinni. Þórður er með þriggja högga forskot en þetta er ellefta mótið hjá honum á tímabilinu. Besti árangur Þórðar Rafns er áttunda sætið á þessu tímabili.

Fimm efstu á stigalista Pro Golf mótaraðarinnar tryggja sér sæti á Áskorendamótaröðinni á næsta tímabili - sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu. Að auki tryggja þeir sér sæti á öðru stigi af alls þremur á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina.

Pro Golf mótaröðin, er einnig þekkt undir nafninu EPD mótaröðin, en frá árinu 2001 hefur mótaröðin verið í flokki mótaraða sem teljast til þriðju deildar í Evrópu.

Margir þekktir kylfingar hafa farið í gegnum Pro Golf mótaröðina og má þar nefna Martin Kaymer frá Þýskalandi, sem hefur sigrað á risamóti og leikið með Ryderliði Evrópu. Marcel Siem, landi hans, hefur einnig farið í gegnum þessa mótaröð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert