Metfjöldi íslenskra kylfinga í Slóvakíu

Axel Bóasson er einn þeirra kylfinga sem verður í Slóvakíu.
Axel Bóasson er einn þeirra kylfinga sem verður í Slóvakíu. mbl.is/Styrmir Kári

Sex íslenskir áhugakylfingar hefja leik á morgun, miðvikudag, á Evrópumeistaramóti einstaklinga sem fram fer í Slóvakíu. Leikið verður á Penati golfvallasvæðinu þar sem tveir 18 holu vellir eru en Jack Nicklaus hannaði báða vellina. 

Aðeins stigahæstu kylfingarnir á heimslista áhugamanna fá keppnisrétt á þessu móti og er þetta metfjöldi hjá Íslendingum sem er ánægjuefni. Þeir sem taka þátt fyrir Íslands hönd er: Axel Bóasson (GK), Andri Þór Björnsson (GR), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR), Bjarki Pétursson (GB) og Gísli Sveinbergsson (GK). Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari Íslands er með í för og verður keppendum til halds og trausts. 

Haraldur Franklín og Ragnar Már Garðarsson úr GKG tóku þátt í fyrra á þessu móti þegar það fór fram í Skotlandi. Þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn. 

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að keppt er í höggleik og að loknum öðrum keppnisdegi komast 60 efstu áfram á lokakeppnisdagana tvo. Alls eru 144 keppendur sem komast inn á þetta sterka mót. 

Margir þekktir kylfingar hafa sigrað í þessu móti. Ashley Chesters frá Englandi varði titilinn í fyrra en á meðal þeirra sem hafa sigrað má nefna; Victor Dubuisson (Frakkland) 2009, Rory McIlroy (Norður-Írland) 2006 og Sergio Garcia (Spánn) 1995. 

Axel Bóasson úr Keili á bestan árangur allra Íslendinga á þessu móti en hann endaði í 8.-12. sæti árið 2012. Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, endaði í 9. sæti árið 1993. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert