Arnór fagnaði óvæntum sigri gegn Róberti

Arnór Atlason fagnaði sigri í kvöld.
Arnór Atlason fagnaði sigri í kvöld. mbl.is/Golli

Arnór Atlason og samherjar í Saint Raphael unnu í kvöld óvæntan sigur á stjörnum prýddu liði París SG, 32:31, í frönsku 1. deildinni í handknattleik.

Arnór skoraði 2 mörk úr 4 tilraunum fyrir Saint Raphaeal en Róbert Gunnarsson náði ekki að skora fyrir PSG og brenndi af sínum þremur skotum í leiknum. 

Morten Olsen var markahæstur hjá Saint Raphael með 8 mörk en Marko Kopljar skoraði 6 fyrir PSG. Liðin eru bæði með 2 stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert