Atli Ævar með annan stórleik

Atli Ævar Ingólfsson.
Atli Ævar Ingólfsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Atli Ævar Ingólfsson átti í dag annan stórleikinn á aðeins nokkrum dögum fyrir Guif í sænska handboltanum og hefur hann nú skorað 18 mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins. Guif sigraði Savehof 26:21 á útivelli.

Atli Ævar skoraði átta mörk af línunni í dag og var með tíu mörk í síðasta leik liðsins. Aron Rafn Eðvardsson er markvörður Guif og Kristján Andrésson þjálfar liðið.

Guif er í 2. sæti deildarinnar á eftir Kristianstad sem er með gott forskot á toppnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert