Bjarki og félagar í úrslit

Bjarki Már Elísson í leik með íslenska landsliðinu gegn Makedóníu …
Bjarki Már Elísson í leik með íslenska landsliðinu gegn Makedóníu á HM 2017. AFP

Bjarki Már Elísson og samherjar hans hjá þýska liðinu Füchse Berlin tryggðu sér sæti í úrslitum EHF-bikarsins í handbolta karla með 35:24-sigri liðsins gegn franska liðinu Saint-Raphael í undanúrslitum keppninnar í dag.

Bjarki Már komst ekki á blað í leiknum í dag, en setti mark sitt á leikinn þegar honum var vísað af velli með rauðu spjaldi um miðbik fyrri hálfleiks.

Füchse Berlin mætir þýska liðinu Göppingen í úrslitaleiknum á morgun. Göppingen lagði þýska liðið Magdeburg að velli, 33:29, í hinum undanúrslitaleiknum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert