Haukar og ÍR tóku síðustu sætin

Maria Pereira skoraði fimm mörk fyrir Hauka.
Maria Pereira skoraði fimm mörk fyrir Hauka. mbl.is/Kristinn Magnússon

Haukar og ÍR urðu í kvöld síðustu liðin til þess að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handknattleik, Coca Cola-bikarsins, eftir sigra í leikjum sínum í kvöld.

Haukar mættu Aftureldingu í Mosfellsbæ. Eftir að hafa haft eins marks forskot í hálfleik 10:9 unnu Haukar öruggan sigur 22:15. Maria Pereira skoraði 5 mörk fyrir Hauka eins og Guðrún Erla Bjarnadóttir en hjá Aftureldingu skoraði Telma Rut Frímannsdóttir sex mörk.

ÍR vann svo öruggan sigur á Víkingi 34:27 eftir að hafa einnig verið sjö mörkum yfir í hálfleik 16:9. Sólveig Lára Kristjánsdóttir skoraði sjö mörk fyrir ÍR en hjá Víkingi var Alina Molikova í algjörum sérflokki og skoraði 15 mörk.

Ásamt Haukum og ÍR verða Fram, HK, KA/Þór, Stjarnan, ÍBV og Fjölnir í hattinum þegar dregið verður í átta liða úrslitin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert