Góður útisigur Melsungen

Arnar Freyr Arnarsson er lykilmaður hjá Melsungen
Arnar Freyr Arnarsson er lykilmaður hjá Melsungen Kristinn Magnússon

Arnar Freyr Arnarsson skoraði 4 mörk þegar Melsungen sigraði Rhein-Neckar Löwen á útivelli í þýska handboltanum í dag. Leiknum lauk 28:23.

Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað í liði Melsungen og Ýmir Örn Gíslason var ekki í leikmannahópi Löwen en hann gengur til liðs við Göppingen í sumar. Melsungen situr í 5. sæti deildarinnar en Löwen í 11. sæti.

Heiðmar Felixsson, aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf, var á sínum stað þegar lærisveinar hans töpuðu 28:23 fyrir Lemgo á útivelli. Hannover er í 7. sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert