William Nelson til Snæfells

William Nelson lék síðast með LSU Shreveport í NAIA-deildinni.
William Nelson lék síðast með LSU Shreveport í NAIA-deildinni.

Snæfell hefur gengið frá samningum við bandaríska leikmanninn William Henry Nelson og mun hann leika með liðinu í Dominos-deild karla í körfuknattleik í vetur.

Nelson er um 2 metrar á hæð og leikur í stöðu framherja. Hann lék síðast með LSU Shreveport í NAIA-deildinni þar sem hann skoraði að meðaltali 22,4 stig og tók 9,7 fráköst.

Með komu Nelsons er leikmannahópur karlaliðs Snæfells orðinn fullmannaður. Nelson þreytir frumraun sína í búningi Snæfells í leiknum gegn KR í Lengjubikarnum í DHL-höllinni á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert