Björn hættur með KR liðið

Björn Einarsson við undirskrift á samningi við KR.
Björn Einarsson við undirskrift á samningi við KR. Ljósmynd / kr.is

Björn Einarsson hefur ákveðið að þjálfa ekki kvennalið KR í körfubolta á næstkomandi tímabili eins og til stóð. Eins og fram hefur komið hefur KR ákveðið að gefa eftir sæti sitt í Dominos deild kenna á næsta tímabili og leika þess í stað í 1. deild kvenna. Þetta var Björn ekki sáttur við og hefur sagt skilið við Vesturbæjarliðið.

„Ég yfirgaf toppklúbb til að þjálfa í úrvalsdeildinni en ekki í 1. deild. Ég var ekki sáttur við þá ákvörðun stjórnar að senda liðið niður í 1.deild en virði hinsvegar þá ákvörðun og geri þá ráð fyrir að klúbburinn virði mína ákvörðun,“ sagði Björn í samtali við karfan.is.

Ekki hefur verið ákveðið hver stýrir KR liðinu í 1. deildinni í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert