James með þrennu en Golden State tapaði

Kevin Durant og félagar urðu að sætta sig við tap …
Kevin Durant og félagar urðu að sætta sig við tap í nótt. AFP

NBA-deildin í körfubolta hófst í nótt með þremur leikjum og varð Kevin Durant að þola tap í fyrsta leik sínum með Golden State Warriors, eftir komuna frá Oklahoma City Thunder í sumar.

Golden State mætti San Antonio Spurs sem vann 129:100-sigur. Durant skoraði 27 stig og tók 10 fráköst, og Stephen Curry skoraði 26 stig. Það dugði engan veginn gegn sterku liði San Antonio sem náði góðum 19:4-kafla í lok fyrri hálfleiks, komst í 64:46, og átti ekki í vandræðum eftir það.

Kawhi Leonard var stigahæstur San Antonio með 35 stig og LaMarcus Aldridge skoraði 26 stig og tók 14 fráköst.

Meistarar Cleveland Cavaliers unnu New York Knicks af öryggi, 117:88. LeBron James hóf tímabilið með látum og gerði þrennu; skoraði 19 stig, átti 14 stoðsendingar og tók 11 fráköst. Kyrie Irving skoraði 29 stig.

Í þriðja leik næturinnar vann Portland Trail Blazers 113:104-sigur á Utah Jazz.

LeBron James fór á kostum gegn New York Knicks í …
LeBron James fór á kostum gegn New York Knicks í nótt. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert