Hefðu ólíklega brugðist eins við

Hópmálsókninni gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni var vísað frá dómi í …
Hópmálsókninni gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni var vísað frá dómi í morgun. mbl.is/Ásdís

Ekki er ástæða til annars en að áætla að öll hlutabréf í Landsbankanum hafi orðið verðlaus í kjölfar þess að stjórn bankans var yfirtekin af Fjármálaeftirlitinu í október 2008. Eignir félagsmanna í málsóknarfélaginu er höfðaði mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni fóru því forgörðum við fall bankans.

Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem vísaði í morgun hópmálsókninni frá dómi. Úrskurðinum verður skotið til Hæstaréttar að sögn lögmanns málsóknarfélagsins.

Frétt mbl.is: Hópmálsókn gegn Björgólfi vísað frá 

Málatilbúnaður félagsins byggði m.a. á því að hefði Björgólfur hagað sér á þann veg sem honum hafi borið að gera, þ.e. m.a. virt skyldu um að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð, hefðu félagsmenn ekki verið í þeirri stöðu að eiga hlut í bankanum þegar hann féll. 

Í úrskurðinum segir að þessi röksemdafærsla sé ljóslega háð þeirri forsendu að hver og einn félagsmanna hefði brugðist eins við. Allir félagsmenn, sem áttu hlutabréf í bankanum á þeim tíma, hefðu samkvæmt þessu selt hlutabréf sín í bankanum. Þá hefðu engir félagsmanna heldur keypt hlutabréf í bankanum.

Ekki sýnt fram á tjón

„Almennt verður að ætla að ólíkar forsendur liggi að baki ákvörðunum einstakra fjárfesta við kaup og sölu á hlutabréfum,“ segir í úrskurðinum. Á þeim grunni verði að telja með ólíkindum að allir félagsmenn hefðu brugðist eins við þeim upplýsingum sem málsóknarfélagið telur að skort hafi á um viðskipti Björgólfs við bankann og stöðu Samson, eignarhaldsfélags hans, gagnvart bankanum.

Í úrskurðinum segir að þessi forsenda, að allir félagsmenn hefðu brugðist við upplýsingagjöf ýmist með því að selja hlutabréf sín í bankanum eða láta hjá líða að kaupa þau, sé háð mikilli óvissu.

Ekki hafi því verið gert viðhlítandi grein fyrir því tjóni sem félagsmenn áttu að hafa orðið fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK