Tvö félög stefna Björgólfi Thor

Tvö félög hafa nú stefnt Björgólfi Thor Björgólfssyni en málin …
Tvö félög hafa nú stefnt Björgólfi Thor Björgólfssyni en málin verða þingfest 1. nóvember. mbl.is/Ásdís

Tvö félög sem keyptu hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. á árunum 2006 og 2007 hafa stefnt Björgólfi Thor Björgólfssyni til greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem félögin urðu fyrir vegna kaupanna. Um er að ræða félögin Vogun hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. en málin verða þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 1. nóvember næstkomandi.

Bæði félögin tóku þátt í hópmálsókn hluthafa Landsbanka Íslands gegn Björgólfi Thor sem var vísað frá dómi með dómi Hæstaréttar þann 2. maí. Í fréttatilkynningu segir að þau hafi nú ákveðið að láta reyna á rétt til skaðabóta í sjálfstæðum málum. Byggir málsókn þeirra á sömu rökum og grundvelli og fyrri hópmálsókn.

Telja stjórnir félaganna að fram komin gögn gefi sterklega til kynna að Björgólfur Thor hafi með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar í Landsbanka Íslands hf. hafi fengið upplýsingar um umfangsmiklar lánveitingar tengdar honum og einnig að hann hafi brotið gegn reglum um yfirtökuskyldu eftir að Samson eignarhaldsfélag hf. náði yfirráðum yfir Landsbankanum.

Telja félögin að Landsbanki Íslands hf. hafi verið undir fullum yfirráðum Samson eignarhaldsfélags hf. frá miðju ári 2006, en við þær aðstæður hafi yfirtökuskylda stofnast. Hafi Björgólfur Thor sem stjórnarformaður Samson látið undir höfuð leggjast að bregðast við yfirtökuskyldu sem á félaginu hvíldi og með þeirri vanrækslu bakað sér bótaábyrgð gagnvart hluthöfum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka