Sjúkraflutningafólk slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fór í 22 sjúkraflutninga tengda Covid-19 síðasta sólarhringinn.
Alls voru 94 boðanir á sjúkrabíla. Þar af voru 34 forgangsflutningar. Slökkviliðið sinnti sex útköllum á dælubíla að því er segir á facebooksíðu SHS.