Loos segist þekkja náið til ákveðinna líkamshluta á Beckham

David og Victoria Beckham í Lundúnum í vikunni.
David og Victoria Beckham í Lundúnum í vikunni. AP

Rebecca Loos, sem segist hafa átt í ástarsambandi við David Beckham, segir að hún þekki til ákveðinna líkamshluta knattspyrnumannsins á hátt sem aðeins sé mögulegur eftir kynferðislegt samband. Loos er fyrrverandi aðstoðarkona Beckham-hjónanna. Hún greindi frá því í sjónvarpsviðtali að hún vissi nokkuð um Beckham, sem aðeins konur sem hefðu sofið hjá honum gætu vitað, en neitaði að greina nánar frá því hvað hún ætti við.

Loos, sem er 26 ára, var aðstoðarmaður Beckhams í Madríd eftir að hann flutti þangað. Sky fréttastöðin í Bretlandi hefur tekið viðtal við hana og hefur sýnt hluta úr því frá því í gær en viðtalinu verður sjónvarpað klukkan níu í kvöld, að íslenskum tíma.

Í viðtalinu var Loos spurð hvort Beckham hefði einhver séreinkenni á líkama sínum. „Það er nokkuð sem ég veit um hann og tengist ákveðnum líkamshluta, en ég tel að eingöngu konur sem hafa sofið hjá honum gætu þekkt til hans. Svo ef þau færu með málið fyrir dóm gæti ég auðveldlega staðið upp þar og sagt, sko...“ sagði Loos.

Aðspurð um hvort hún væri reiðubúin að bera vitni fyrir dómstólum svaraði Loos: „Já, auðvitað.“

Sky hefur neitað að tjá sig um frétt í breskum fjölmiðlum, þess efnis, að stöðin hafi greitt 500.000 pund, eða rúmar 60 milljónir íslenskra króna, fyrir viðtalið.

Beckham og Viktoría eiginkona hans, segja fullyrðingar um framhjáhald Davids fáránlegar og fjarstæðukenndar. Þau hafa ráðfært sig við lögfræðinga og snúa bökum saman gegn fullyrðingunum.

Í dag birtust myndir af hjónakornunum í faðmlögum og að versla í Madríd í allnokkrum dagblöðum í Bretlandi.

Önnur kona, Sarah Marbeck, sem er 29 ára, hefur einnig fullyrt að hún hafi átt í ástarsambandi við Beckham, en fullyrðingar hennar hafa verið dregnar í efa, meðal annars af fylgdarþjónustufyrirtæki sem hún starfaði hjá.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riley og Lucinda Riely
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riley og Lucinda Riely
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir