Selur sílikonið til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini

Katie Price
Katie Price AFP

Breska fyrirsætan Katie Price (áður Jordan) hefur ákveðið að selja gömlu sílikon-brjóstafyllingarnar sínar og gefa andvirðið til baráttunnar gegn brjóstakrabbameini. Þetta kemur fram í viðtali við hana í The Sun.

Þar kemur fram að Price fari fljótlega í sína sjöundu brjóstaaðgerð og ætli í kjölfarið að selja gömlu fyllingarnar. Hún veltir fyrir sér að árita þær fyrir uppboðið.

Samkvæmt fréttinni er hennar raunverulega brjóstastærð 32B en þegar hún var 19 ára var hún búin að láta blása brjóstin upp í stærð 32DD. Nokkrum aðgerðum síðar voru þau komin í stærð 32FF en síðan hefur hún heldur látið draga úr umfangi þeirra. En nú finnst Price orðið tímabært að láta laga sig aðeins til þar sem hún telur að barneignir hafi sett svip sinn á líkama hennar. Hún og eiginmaður hennar eiga tvö börn, Jett eins árs og Bunny sem er tveggja mánaða.

Hún segir að þar sem það sé svo stutt á milli barnanna hafi brjóstin látið á sjá og úr því vilji hún nú bæta, 36 ára að aldri, en viðurkennir um leið að hún sé kannski ekki mjög eðlileg í útliti.

Hér er hægt að skoða myndaalbúm með fyrirsætunni 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson