Umræður um forsetakosningar hafa tímabundið tekið við af EM-umræðum á Twitter. Einhverjir biðja um Andra á Alþingi og aðrir bíða spenntir eftir næstu útgáfu Morgunblaðsins.
Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans, væri til í að sjá Andra Snæ Magnason á öðrum vettvangi stjórnmálanna þar sem leiðin virðist ekki liggja á Bessastaði í þetta skipti.
Vona að @AndriMagnason haldi áfram að hamra á umhverfismálunum. Óska engum að afplána á Alþingi en myndi vilja sjá hann þar #forseti
— Atli Fannar (@atlifannar) June 26, 2016
Elíza Reid, eiginkona Guðna Th. Jóhannessonar sem er með forystu í kvöld, hefur komið vel fyrir og heillað marga. Elíza fæddist í Ottawa í Kanada en flutti til Íslands fyrir um tíu árum.
Eliza er fyrirmynd fyrir innflytjendur, sérstaklega konur. Klár kona sem rekur sitt eigið fyrirtæki. Afhverju gera grín af henni? #forseti
— Una Hildardóttir (@unaballuna) June 26, 2016
Sturla Jónsson mældist með 3,53% fylgi á landsvísu rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Hann hefur hins vegar verið leiðandi í skoðanakönnunum Útvarps Sögu og gerðu gamansamir netverjar sér mat úr því.
Hvenær koma fyrstu tölur frá Útvarpi Sögu? #forseti pic.twitter.com/Cs3WxU3waq
— Henrý (@henrythor) June 25, 2016
Helgi Seljan fréttamaður vegur og metur kosti og galla við að búa á Bessastöðum.
"Krakkar mínir. Það eru góðar og slæmar fréttir. Pabbi verður forseti...en það er öldusundlaug á Álftanesi!" #forseti
— Helgi Seljan (@helgiseljan) June 25, 2016
Bragi Valdimar, íslenskufræðingur og Baggalútur, hefur áhyggjur af næstu útgáfu Morgunblaðsins.
Mogginn á mánudag… #forseti pic.twitter.com/VpSTXEPlG9
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) June 25, 2016
Halla Tómasdóttir hefur rokið upp á síðustu vikum og Hrafn Jónsson fjölmiðlamaður hugsar: „Hvað ef?“
Erum við samt að meta að ef þessi kosningabarátta hefði staðið í svona 2 vikur í viðbót væri Halla líklega að verða forseti? #forseti
— Krummi (@hrafnjonsson) June 25, 2016
Ekkert atkvæði fyrir Hildi Þórðardóttir kom upp úr kjörkössum í fyrstu tölum frá Suðvesturkjördæmi. Bragi Valdimar bendir á að það gæti reynst vond minning.
Ekkert atkvæði. Ekkert atkvæði. Ekkert atkvæði. Ekkert atkvæði. Ekkert atkvæði. [Bergmálar að eilífu] #forseti
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) June 25, 2016
Andri og Davíð hefðu fengið hlutverk á Bessastöðum hefði Elísabet Jökulsdóttir unnið.
En hefði ég unnið þá hefðu Davíð og Andri mátt vera hluti af konunum 18 á Bessastöðum. Andri í kjól. Davíð í korselett. #forseti
— Elísabet Jökuls (@ufsaklettur) June 26, 2016
Grínistinn Hugleikur Dagsson spáir í næstu forsetafrú íslenska lýðveldisins.
Dorrit 2.0 #forseti
— hugleikur dagsson (@hugleikur) June 26, 2016