Hætt við skilnaðinn

Jennifer Garner og Ben Affleck eru sögð ætla að vinna …
Jennifer Garner og Ben Affleck eru sögð ætla að vinna í sambandinu. AFP

Leikarahjónin Ben Affleck og Jennifer Garner eru hætt við að skilja, en þau eru sögð ætla að gefa hjónabandi sínu annað tækifæri.

Árið 2015 greindu skötuhjúin frá því að þau hefðu slitið sambandi sínu, en samkvæmt frétt People eru þau nú sögð ætla að vinna í hjónabandinu. Þau eru þó ekki búin að taka upp þráðinn að nýju og ætla sér að taka því rólega.

„Jen er hætt við skilnaðinn. Hana langar verulega mikið að finna út úr hlutunum og gefa hjónabandinu annað tækifæri.“

„Þau elska enn hvort annað, sem og börnin sín. Þau vilja halda fjölskyldunni saman,“ bætti heimildamaðurinn við, en hjónin eiga saman þrjú börn.

Þrátt fyrir að þau hafi slitið sambandi sínu hafa Garner og Affleck búið saman undanfarin tvö ár, og alið börnin upp í sameiningu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson