Caitlyn Jenner lenti í útistöðum við transkonu á viðburði fyrir hinsegin fólk um helgina fyrir það að styðja Donald Trump Bandaríkjaforseta. TMZ greinir frá þessu.
Transkonan, sem heitir Ashlee Marie Preston, birti myndband af rifrildi þeirra á Facebook-síðu sinni seinna um kvöldið þar sem hún skrifar undir það, „Caitlyn Jenner, þú ert rusl“.
Í byrjun myndbandsins sést Jenner sakleysislega reyna að knúsa Preston áður en hún byrjar að ausa yfir hana svívirðingum fyrir að styðja Trump.
Jenner var yfirveguð og róleg meðan á skammaryrðunum stóð en í lokin sagði hún við hana „þú þekkir mig ekki“ sem gerði Preston enn æstari.
Viðburðurinn var haldinn degi eftir að Trump bannaði öllum trans-einstaklingum að starfa í hernum og hefur sú ákvörðun verið nokkuð óvinsæl um öll Bandaríkin.