Grét er hún ræddi um slysið

Forseti Suður-Kóreu, Park Geun-Hye, grét er hún kom fram á blaðamannafundi og ræddi um hið mannskæða ferjuslys sem varð undan strönd landsins. Hún sagði aðgerðir í kjölfar slyssins á sýna ábyrgð. Margir hafi látist þar sem rangt var staðið að björgunaraðgerðinni.

Hún sagði að nú yrði strandgæslan byggð upp að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert