Réttarhöld hafin vegna ferjuslyssins

Réttarhöld hófust yfir fimmtán úr áhöfn ferjunnar Sewol sem sökk í apríl hófust í borginni Gwangju í Suður-Kóreu í dag. Enn leita kafarar í flaki ferjunnar en vitað er að 292 fórust í ferjuslysinu þann 16. apríl sl.

Skipstjóri ferjunnar og þrír aðrir háttsettir í áhöfn hennar eru ákærðir fyrir manndráp og gætu átt yfir höfði sér dauðarefsingu verði þeir fundnir sekir.

Þeir sem eru ákærðir komu í réttarsalinn í dag í handjárnum og hlekkjaðir á fótum íklæddir fangabúningum. 

Alls voru 476 farþegar um borð í ferjunni Sewol þegar hún sökk. Þar af voru 325 námsmenn. 292 lík hafa fundist en enn er 12 enn saknað. Mikið fjölmenni var við réttarhöldin í dag og meðal þeirra eru foreldrar þeirra ungmenna sem fórust með ferjunni.

Frá réttarhöldunum í dag.
Frá réttarhöldunum í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert