Neyddi dótturina til að giftast nauðgara

mbl.is

Karlmaður frá Idaho í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa neytt 14 ára gamla dóttur sína til að giftast 24 ára gömlum fjölskylduvini sem hafði nauðgað henni og gert hana ólétta. 

Maðurinn, sem heitir Keith Strawn, keyrði með dóttur sína og nauðgara hennar til Missouri þar sem ungmenni undir lögaldri mega gifta sig með samþykki foreldra við sérstakar aðstæður.

Strawn segist elska dóttur sína, en skýringar hans eru á þá vegu að hann hafi gert þetta af trúarástæðum. „Ef þú gerir konu ólétta þá giftistu henni,“ sagði hann við dómarann.

Dómarinn dæmdi manninn í 120 daga fangelsi og sagði að það væri svipað langur tími og hjónaband dótturinnar entist. „Á meðan þú eyðir þessum 120 dögum í fangelsi, ættirðu að hugsa um þá 120 daga sem dóttir þín var í hræðilegu hjónabandi með nauðgara,“ sagði hann.

Maðurinn sem braut gegn stúlkunni var í apríl dæmdur í 15 ára fangelsi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert