Vörpuðu sprengju á börn að leik

Þessi litla stúlka var meðal þeirra sem særðust í árás …
Þessi litla stúlka var meðal þeirra sem særðust í árás sem gerð var í Idlib í byrjun mánaðarins. AFP

Að minnsta kosti 22, aðallega börn, voru drepin í loftárás á skóla í Idlib-héraði í norðurhluta Sýrlands. Börnin höfðu safnast saman fyrir utan skólann sinn í leik í þorpinu Hass er árásin var gerð. Mannúðarsamtökin Syrian Observatory segja að fjórtán börn séu meðal þeirra sem létust. Þau óttast að fleiri hafi týnt lífi í árásinni.

Idlib-hérað er höfuðvígi uppreisnarmanna í Sýrlandi. Þar hafa einnig hryðjuverkahópar hreiðrað um sig. Undanfarin misseri hafa Rússar og Sýrlandsher ítrekað gert árásir á svæðinu. Sömu sögu er að segja af hersveitum bandamanna sem Bandaríkjamenn fara fyrir. 

Á myndum af árásinni í morgun má sjá hvar þykkur, svartur reykjamökkur stígur upp til himins. Út úr honum streyma björgunarmenn með fórnarlömb árásarinnar, særð eða látin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert