Aðeins tveir meðmæltir sameiningu í Grýtubakkahreppi

Búið er að telja atkvæði sem greidd voru í Grýtubakkahreppi um tillögu um sameiningu allra sveitarfélaga við Eyjafjörð. 210 greiddu atkvæði eða 82% atkvæðisbærra manna. Aðeins tveir samþykktu sameiningartillöguna en 208 felldu hana eða rúmlega 99%.

Sameiningartillagan var samþykkt á Siglufirði. Þar var 60,8% kjörsókn. 64,4% sögðu já en 34,7% sögðu nei. Tillagan var einnig samþykkt í Ólafsfirði. Þar sögðu 55,3% já en 43,2% nei. Kjörsókn var 68,2%.

Tillagan var hins vegar felld í Svalbarðsstrandarhreppi. Þar var kjörsókn 71,6%. 25,7% sögðu já en 73,7% sögðu nei.

Í Arnarneshreppi var sameiningartillagan einnig felld. Þar greiddu 98 atkvæði sem var 77,78% kjörsókn. 34, eða 34,69%, sögðu já en 64 eða 65,31%, sögðu nei.

Í Eyjafjarðarsveit var kjörsókn 61,4%. 57 eða 13,7% sögðu já en 358, eða 86,1%, sögðu nei.

Í Dalvíkurbyggð var tillögunni hafnað með afgerandi hætti. Þar var kjörsókn 64,9%. Já sögðu 35,4% en nei 63%. 1,4% atkvæðaseðla voru ógild eða auð.

Í Hörgárbyggð var kjörsókn 65,54%. 11,5% samþykktu sameiningu en 88,5% voru henni andvíg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka