Sameining í Norður-Múlasýslu felld

Kjósendur í Vopnafjarðarhreppi felldu tillögu um sameiningu Skeggjastaðahrepps og Vopnafjarðarhrepps í Norður-Múlasýslu í dag. Telst tillagan því felld.

Í Skeggjastaðahreppi sögðu 65,4% þátttakenda já en 34,6% nei. Kjörsókn var 61,2%. Í Vopnafjarðarhreppi sögðu 64% nei en 36% já. Kjörsókn var 48,2%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka