Komu fyrir sprengju í jeppabifreið

Ernir Eyjólfsson

Um klukkan þrjú aðfaranótt 6. september barst lögreglu tilkynning um að einhvers konar sprengja hefði sprungið í jeppabifreið fyrir utan hús í Reykjahlíð, með þeim afleiðingum að nokkrar rúður bifreiðarinnar brotnuðu.

Vitni sagðist hafa séð þrjá menn hlaupa á brott eftir að sprengjan sprakk en gat ekki gefið nánari lýsingu á þeim.

Málið er í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert