1.050 fæddust - 480 létust

Í lok 2. ársfjórðungs 2014 bjuggu 327.050 manns á Íslandi, 164.130 karlar og 162.920 konur. Landsmönnum fjölgaði um 700 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 23.080 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 209.680 manns. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar.
 
Á 2. ársfjórðungi 2014 fæddust 1.050 börn, en 480 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 130 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 10 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 130 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 190 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 430 íslenskir ríkisborgarar af 650 alls. Af þeim 680 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 140 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (160), Noregi (160) og Svíþjóð (110), samtals 430 manns af 660. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 270 til landsins af alls 800 erlendum innflytjendum. Spánn kom næst, en þaðan fluttust 45 erlendir ríkisborgarar til landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert