Stunginn með hnífi í Austurstræti

mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að alvarlegri líkamsárás sem átti sér stað við Austurstræti 11, fyrir utan skemmtistaðinn Austur, aðfararnótt sunnudagsins 28. september.

Atvikið átti sér stað milli kl. 04:00 og 4:30 Þar var maður stunginn með hnífi, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan óskar eftir því að þeir sem urðu vitni að samskiptum mannanna, eða árásinni sjálfri hafi samband við lögreglu gegnum símann 444-1000, netfangið berglind.eyjolfsdottir@lrh.is eða einkaskilaboð á Facebooksíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert