Lögregla lýsir eftir tveimur stúlkum

Sandra Ósk og Sandra Rún.
Sandra Ósk og Sandra Rún.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Söndru Rún Raybould, 13 ára, og Söndru Ósk Kristjánsdóttur, 15 ára.

Sandra Rún, sem er 165 cm á hæð og með dökkt sítt hár, er í ljósgrænni úlpu, gráum leggings og í Timberland-skóm. Sandra Ósk, sem er 160 cm á hæð og með ljósrautt sítt hár, er í Cintamani-úlpu með loðkraga, svörtum leggings og rauðum strigaskóm.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir þeirra, eða vita hvar þær er að finna, eru vinsamlega beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Uppfært kl. 19.43:

Stúlkurnar eru fundnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert